143. löggjafarþing — 68. fundur,  25. feb. 2014.

aðildarviðræður við Evrópusambandið.

320. mál
[21:34]
Horfa

Ragnheiður Ríkharðsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þegar stórt er spurt verður nú oftar en ekki fátt um svör. En það er önnur skýrsla á leiðinni. Hún er frá aðilum vinnumarkaðarins og hana gerir Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands. Ég hefði talið og tel skynsamlegt að eftir henni verði beðið og þessar tvær skýrslur þá skoðaðar saman og ræddar saman áður en endanleg ákvörðun verður tekin af hálfu þingsins um hvort slíta eigi viðræðum við Evrópusambandið eður ei.