aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Virðulegi forseti. Ég hjó eftir því að beiðni mín um að slakað yrði á í þessu máli naut ekki skilnings hv. þm. Guðlaugs Þórs Þórðarsonar. Ég geri þó ráð fyrir að hann skilji orðasambandið „að slaka á“. Ég meinti heldur ekki að ég skynjaði ekki eins og hann að við værum öll fullkomlega róleg hérna inni núna. Hins vegar var ég að beina sjónum okkar allra að ákveðnum asa sem virðist vera á málinu og mér finnst mjög áhugaverður í ljósi þess að það er í raun og veru ekkert að gerast úti í heimi eða hér í Evrópusambandsmálum, það er hlé á þessum viðræðum.
Af hverju liggur svona á að klára umræðuna um skýrsluna? Af hverju liggur svona á að koma á dagskrá þingsályktunartillögunni um að slíta viðræðunum? Hver er asinn? Því er algerlega ósvarað. Í þeirri merkingu held ég að skynsamlegt sé að anda vel ofan í kviðinn og slaka aðeins á og að við veltum gaumgæfilega fyrir okkur (Forseti hringir.) ESB-málum á dagvinnutíma í stað þess að vera að gera það fram á kvöld, eins og þetta sé spurning um að ljúka málinu fyrir helgi.