Dagskrártillaga.
Herra forseti. Ég segi það og mér skildist það nú á ræðum manna í gær að það væri ekki unnt að taka önnur mál á dagskrá fyrr en við værum búin að ljúka umræðum um hina frægu skýrslu. Ég vil enn fremur segja það að ef menn hefðu ekki tafið þingstörfin með endalausum umræðum um fundarstjórn forseta væri þessi tillaga eflaust komin á dagskrá. Mér hefði fundist það eðlilegasti framgangur hér á þingi að þessar tillögur allar kæmust á dagskrá og væru ræddar með eðlilegum hætti og sendar síðan allar til nefndar og ræddar þar í næstu viku.