Dagskrártillaga.
Hæstv. forseti. Það er leitt að hafa valdið hæstv. fjármálaráðherra vonbrigðum með því að hafa ekki komið með þessa tillögu fyrr, en nú höfum við tækifæri til að greiða atkvæði og gefa þjóðinni færi á því að kjósa um þetta mál. Við höfum nægan tíma til að ræða málið til hlítar, með öllum þeim skýrslum sem eru væntanlegar, bæði hér í þinginu og úti í samfélaginu, þannig að við séum fær um að taka afstöðu í lok maí.
Ég legg á það mikla áherslu að við leyfum þjóðinni að tjá sig í þessu máli úr því sem komið er og reynum þannig að leita sátta í því mikilvæga máli. Ég segi þess vegna já.