dagskrártillaga.
Hæstv. forseti. Þriðja daginn í röð hafa þúsundir kjósenda allra flokka boðað komu sína á Austurvöll til að mótmæla fyrirætlunum ríkisstjórnarinnar um að draga aðildarumsókn að Evrópusambandinu til baka. Ríkisstjórnin skrifaði stjórnarsáttmála og í honum stendur, með leyfi forseta:
„Ríkisstjórnin mun leitast við að virkja samtakamátt þjóðarinnar og vinna gegn því sundurlyndi og tortryggni sem einkennt hefur íslensk stjórnmál og umræðu í samfélaginu um nokkurt skeið.“
Um leið og ég segi já við því að dagskrárbreyting fái að fara fram hér í dag ætla ég að gefa stjórnarmeirihlutanum þau góðu ráð að sýna smávink út á Austurvöll og segja líka já.