143. löggjafarþing — 69. fundur,  26. feb. 2014.

aðildarviðræður við Evrópusambandið.

320. mál
[17:40]
Horfa

Steingrímur J. Sigfússon (Vg) (frh.):

Herra forseti. Ég vona að svo hafi tekist til að hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra og helst hæstv. forsætisráðherra séu viðstaddir umræðuna eins og ég óskaði eftir í gærkvöldi og þeim á að vera ljóst að ég fer fram á. Ég sé hér að minnsta kosti hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra og þakka fyrir hans viðveru.

Ég vil fyrst nefna, áður en ég kem að því sem ég vil ræða sérstaklega við hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra, ræðu hv. þm. Ragnheiðar Ríkharðsdóttur, formanns þingflokks Sjálfstæðisflokksins, og þakka fyrir hana. Hún var einlæg og góð og sómi að því hvernig hv. þingmaður talaði þar fyrir sínum sjónarmiðum og ég vænti þess og vona að aðrir, sérstaklega aðrir hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins og ráðherrar, hafi hlýtt á hana.

Nú erum við hér að ræða þessa skýrslu en engu að síður er það svo, vegna þess að hæstv. ríkisstjórn kaus að leggja fram tillögu sína um málsmeðferð í framhaldinu, í miðri umræðu um þessa skýrslu, að tillögurnar hafa blandast saman, reyndar tvær komnar fram í viðbót, tillaga frá þingmönnum Pírata og fleirum og tillaga frá þingflokki Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs. Sú tillaga er lögð fram með hliðsjón af og í ljósi þeirra aðstæðna sem uppi eru í þessu máli með von um að þar sé að finna grundvöll til málamiðlunar sem gæti sameinað fleiri um það hvernig haldið verður á þessu vandasama máli.

Ég leyfi mér að trúa því að trúlega sé í einhverri slíkri málsmeðferð fólginn besti samnefnarinn sem hægt er að finna við núverandi aðstæður. Má færa fyrir því mörg rök. Ég vil því spyrja hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra, Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins: Er það ekki kostaboð, er það ekki góð lausn á málinu að fara með þetta mál með einhverjum þessum hætti? Yfir 30 þús. manns hafa nú með undirskriftum sínum óskað eftir hinu sama, að þjóðin fái, hvort sem það væri núna fljótlega eða þá einhvern tímann síðar á kjörtímabilinu, að láta álit sitt í ljós. Það eru þúsundir hér úti á Austurvelli dag eftir dag til að biðja um hið sama. Mjög margir forsvarsmenn í atvinnulífinu hafa lýst mikilli óánægju og miklum áhyggjum ef sú leið verður farin sem ríkisstjórnin leggur til. Yrði tillaga okkar eða einhver sambærileg málsmeðferð niðurstaðan er enginn ómöguleiki lengur til staðar, hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra, einfaldlega vegna þess að þá verður það ekki lagt á núverandi ríkisstjórn að standa fyrir viðræðum innan kjörtímabilsins.

Það að gera formlegt hlé á viðræðunum er átakaminni meðferð þessa máls en að stíga skrefið alla leið og slíta þeim með afleiðingum sem það kann að hafa, ekki síst í ljósi þess að þjóðin var í góðri trú um að það kæmi til hennar kasta, eðlilega, þegar fleiri en einn og fleiri en tveir stjórnmálaflokkar höfðu í raun hallað sér að þeirri niðurstöðu að best væri að skjóta málinu til hennar. Þá er mætt, þótt með nokkrum töfum væri, þeirri ósk. Á meðan mundu málin skýrast, bæði hér heima og úti í Evrópu, þannig að við værum kannski í betri stöðu til að leggja mat á ýmislegt hér hjá okkur sjálfum, hvernig okkur hefði gengið, án þess að breyta utanríkispólitískum tengslum þjóðarinnar og ýmis stórmál hefðu væntanlega skýrst hvað varðar þróun Evrópusambandsins sjálfs. Við værum að fara að þekktu fordæmi, að gera hlé á viðræðum vegna breyttra pólitískra aðstæðna eða vilja þjóðar, dæmi: Sviss, dæmi: Malta, og í raun og veru mætti nefna Tyrkland í þann hóp sem hefur verið umsóknarríki árum saman en á köflum hafa þær viðræður legið meira og minna niðri.

Ég er svo að lokum sannfærður um að þetta er langbesta leiðin til að takast á við það ástand að þjóðin er líka klofin í þessu máli og sýnist sitt hverjum. En þjóðin mun taka því allt öðruvísi (Forseti hringir.) ef lýðræðisleg niðurstaða fæst um málsmeðferðina tekin af henni sjálfri. Því er þjóð í lýðræðisríki vön, hún veit að það er besta leiðin til að leysa slíkt mál þannig að ég vildi gjarnan heyra viðbrögð hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra við þessum hugleiðingum.