143. löggjafarþing — 69. fundur,  26. feb. 2014.

aðildarviðræður við Evrópusambandið.

320. mál
[17:46]
Horfa

Steingrímur J. Sigfússon (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Nú man ég ekki hvort hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra var kominn á þing þegar hér var felld tillaga til dæmis um þjóðaratkvæðagreiðslu um Kárahnjúkavirkjun. Hæstv. ráðherra segir að það sé hreinlegast að ganga frá þessu í ljósi pólitískra aðstæðna með vísan til síðustu kosninga og þjóðarinnar. Nú er vandinn sá að þegar kemur að þjóðinni — jú, þá er að vísu í flestum könnunum nokkur meiri hluti andvígur aðild en um leið meiri hluti fyrir því að leiða viðræður til lykta og fá að greiða atkvæði um niðurstöðuna, fá að sjá niðurstöðu vegna þess að drjúgur hluti landsmanna er ekki endilega með uppgerðan hug í þessum efnum.

Það eru fylkingar fullkomlega sannfærðra andstæðinga og fullkomlega sannfærðra aðildarsinna en það eru margir sem vilja fá að sjá hvernig samningsniðurstaða gæti litið út.

Varðandi það að lesa út úr ræðu minni að ég hafi haldið því opnu að ganga í Evrópusambandið, að það sé orðin mín skoðun, er það misskilningur hjá hæstv. ráðherra. Það er meðal annars ítrekað sérstaklega, í greinargerð með þeirri tillögu sem ég spurði hæstv. ráðherra um, að afstaða okkar í þeim efnum er óbreytt. (Forseti hringir.) Það þarf að takast á við þetta mál engu að síður eins og enginn ætti að vita betur en formaður Sjálfstæðisflokksins, hæstv. ráðherra. Eitthvað hefur hann nú fundið fyrir því að þetta er ekki alveg einfalt.