143. löggjafarþing — 69. fundur,  26. feb. 2014.

aðildarviðræður við Evrópusambandið.

320. mál
[17:50]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni ágæta ræðu. Ég velti svolítið fyrir mér spurningum sem ég hef verið spurður upp á síðkastið sem varða Evrópusambandið í sambandi við Evrópska efnahagssvæðið, nefnilega hvar við stöndum gagnvart því ef viðræðum er slitið, þ.e. ef við miðum við það að gera hlé annars vegar og slíta viðræðunum hins vegar. Margir hafa áhyggjur af því að þá sé ýmist EES orðið að einhverju nýju risafyrirbæri sem við þurfum þá að fara kannski að pæla í upp á nýtt. Þetta eru spurningar, ítreka ég. Hins vegar eru þá spurningar varðandi gjaldeyrishöftin, þ.e. hvort það komi okkur í klandur við slit viðræðnanna gagnvart Evrópusambandinu. Ég veit að hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon er talsvert fróðari maður en ég um þetta og því langar mig að varpa til hans þessum spurningum.