143. löggjafarþing — 69. fundur,  26. feb. 2014.

aðildarviðræður við Evrópusambandið.

320. mál
[18:25]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (P) (andsvar):

Ég þakka svarið. Mér finnst þetta geta verið skynsamleg meðferð á málinu og það væri mjög athyglisvert að heyra einmitt hvað formanni utanríkismálanefndar finnst um slíkt verklag. Ég held að mjög mikilvægt sé að við förum ítarlega í skýrsluna, þess vegna erum við með þetta þinglega ferli. Mál er lagt fram, við ræðum það og síðan förum við í alla vinnuna sem á sér stað í nefndinni þar sem við fáum sérfræðingana til að fara með okkur í gegnum ýmis álitamál og ýmis atriði sem við þurfum síðan að skoða betur.

Hvað finnst þá hv. þingmanni um það að í raun og veru sé bara búið að ákveða að hunsa algjörlega þá vinnu? Það er kannski alveg sama hvað kemur fram í þeirri vinnu ef búið er að taka ákvörðun um það, því að búið er að leggja fram mál um að slíta viðræðum áður en við förum í þetta mikilvæga ferli.