aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Herra forseti. Ég er ekki viss um að ég hafi skilið hv. þingmann rétt, hvaða vinnu hún var að tala um að hunsa, hvort það var vinnan við umrædda skýrslu sem hér liggur fyrir. (Gripið fram í.) Já.
Ég leyni því ekkert að mér finnst óheppilegt að tillaga frá ríkisstjórninni hafi komið inn áður en umræðu um skýrsluna var lokið af því að ég leit svo á, eins og margir, að hún ætti að vera grundvöllur að stefnumótun. Og auðvitað ber þetta það þá með sér að ríkisstjórnin hafi verið bara mjög ákveðin í því að þetta væri leiðin sem hún vildi fara. Eins og ég sagði, menn draga út úr þessari skýrslu mismunandi niðurstöður og ríkisstjórnin hefur bersýnilega dregið sína ályktun af skýrslunni. Ég reikna með að hún hafi verið búin að sjá eitthvað af henni í drögum áður en hún kom fram endanlega og það er val ríkisstjórnarinnar að gera það.
Ég tel að það hafi verið óheppilegt og ég tel að það hafi verið óskynsamlegt og ekki endilega þjónað þeim málstað sem ríkisstjórnin vill að nái fram að ganga að lokum í málinu. Ég held að það hafi verið óviturlegt. En það er auðvitað ekki mitt mál, (Forseti hringir.) það er mál hæstv. ríkisstjórnar.