143. löggjafarþing — 69. fundur,  26. feb. 2014.

aðildarviðræður við Evrópusambandið.

320. mál
[18:27]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Margir hafa orðið til þess að gagnrýna þá ákvörðun stjórnvalda að slíta viðræðum við ESB og þar á meðal eru tveir forstjórar stórra alþjóðlegra fyrirtækja hér á landi, Marel og CCP. Þeir benda á að enginn annar valkostur hafi verið dreginn fram og að krónan og gjaldeyrishöftin standi nýsköpun hér á landi fyrir þrifum.

Í skýrslunni sem við ræðum hér er vísað í skýrslu Seðlabankans um valkosti Íslands í gjaldeyris- og gengismálum. Það er ítarlega skýrsla og skýrsluhöfundar benda bara á að þar sé engu við að bæta. Þar er niðurstaðan sú að annað hvort verðum við að taka upp evru eða krónu. Ég vil spyrja hv. þingmann: Hver er skoðun hans á þeirri niðurstöðu í skýrslu Seðlabankans.