143. löggjafarþing — 69. fundur,  26. feb. 2014.

aðildarviðræður við Evrópusambandið.

320. mál
[19:01]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. það er gríðarlega mikilvægt að hér sé sýnd lágmarksvirðing og að frummælandi málsins, hæstv. utanríkisráðherra, ég tala nú ekki um formann utanríkismálanefndar, sé staddur hér og láti a.m.k. sjá sig þegar forustufólk heldur sínar ræður. Mér finnst það eiginlega lágmark að gera það.

Raunar hefur það verið þannig ítrekað, bæði í dag og í gær og raunar lengur, að við þingmenn höfum spurt mjög einfaldra spurninga og við höfum ekki enn þá fengið svar. Við höfum ekki verið virt viðlits um það hvað stendur til að gera við skýrsluna. Stendur til að ljúka þessu með umræðunni hér? Stendur til að vísa skýrslunni til nefndar og vinna hana þar? Stendur til að koma henni aftur inn í þingið? Hvernig verður samspil skýrslunnar síðan við tillögu hæstv. ráðherra og aðrar þær tillögur sem fram hafa komið á undanförnum dögum? (Forseti hringir.) Þessu er ósvarað. Þetta er óviðunandi ástand, virðulegur forseti.