aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Virðulegi forseti. Mér finnst svolítið sérkennilegt þetta skýra mynstur að stjórnarflokkarnir virðast oft og tíðum telja það fullkomlega óhugsandi að nokkur annar muni stíga í pontu í langri umræðu og hafa eitthvað efnislega um málið að segja. Þeir virðast að minnsta kosti ekki hafa mikinn áhuga á því. Af fyrri reynslu minni af því að eiga við stór mál man ég sérstaklega eftir hagstofumálinu sumarið 2013. Þá var hér mjög ítarleg umræða og margir efnispunktar komu fram. Eini afraksturinn af því var að hæstv. forsætisráðherra stóð upp og endurtók alls konar punkta sem var löngu búið að útkljá, margsinnis í þokkabót, og varð hreinlega sér svolítið að athlægi, verður að segjast eins og er.
Mér finnst þetta svolítið þreytandi mynstur og þess vegna óskaði ég einmitt eftir því að hæstv. utanríkisráðherra yrði viðstaddur umræðuna vegna þess að við höfum eitthvað um þetta að segja. Þetta er ekki bara blaður. Það væri fínt ef hann stigi hérna í andsvör og talaði við okkur um þetta, og það er heldur ekki til of mikils ætlast, (Forseti hringir.) þetta er löggjafarsamkoma.
(Forseti (ValG): Forseti upplýsir að hæstv. utanríkisráðherra er í viðtali núna, en hann mun væntanlega koma þegar því er lokið.)