143. löggjafarþing — 69. fundur,  26. feb. 2014.

aðildarviðræður við Evrópusambandið.

320. mál
[19:09]
Horfa

Birgir Ármannsson (S) (um fundarstjórn):

Hæstv. forseti. Ég fagna hverri ræðu sem haldin er um málefnið sem hér er til umræðu og hef leitast við að hlusta á þær. Ég játa það að ég missti af ræðu hv. þm. Birgittu Jónsdóttur en ég mun að sjálfsögðu kynna mér þau sjónarmið sem þar komu fram.

Varðandi hins vegar ræður sem haldnar eru um fundarstjórn forseta þá játa ég að ég hef misst af einhverjum þeirra en í gær og í fyrradag voru fluttar um 300 ræður af því tagi og ég er ekki viss um að ég geti vitnað í þær allar.