um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Ég ætla að biðja hv. þingmann um að benda mér á hvar í fjölmiðlum er sagt að ég hafi sagst standa við orð mín, ég man ekki eftir því, það er þá ágætt að rifja það upp.
Út af þeirri spurningu sem hv. þm. Össur Skarphéðinsson bar hér fram út af viðtali við mig í fréttum fyrr í kvöld þá var viðtalið sýnt 15. júní á RÚV, ríkisútvarpinu okkar, og vitnað í orð Stefans Füles á blaðamannafundi sem við áttum í Brussel þar sem hann sagði að það væri í þágu allra að málið yrði ekki látið bíða lengi. Síðan er á vefsíðu vefritsins EU Observer vitnað beint í orð stækkunarstjórans þar sem hann segir að það sé í þágu okkar allra að ákvörðun um þetta liggi fyrir sem fyrst. Evrópusambandið hefur svo sannarlega óskað eftir því að ákvörðun um það liggi fyrir sem allra fyrst hvort halda eigi áfram viðræðum eða ekki.