um fundarstjórn.
Herra forseti. Þann 16. júlí 2009 samþykkti meiri hluti Alþingis þingsályktunartillögu sem kvað á um það að sótt skyldi um aðild að Evrópusambandinu, ákveðið að fara í aðildarviðræður við Evrópusambandið. Hæstv. utanríkisráðherra á þeim tíma framfylgdi því eðlilega lögum samkvæmt.
Nú kemur fram í máli núverandi hæstv. utanríkisráðherra í sjónvarpsfréttum að hann telji asa á málinu vegna afstöðu Evrópusambandsins. Svo vill til að ríkið Sviss hefur lengi verið með lifandi umsókn inni hjá Evrópusambandinu án þess að verið sé að aðhafast sérstaklega í því máli. Í ljósi þess að fyrir liggur þingsályktun sem í gildi er, taldi þá ekki ráðherra, hafi hæstv. ráðherra skilið þetta svo að asi væri á málinu, eðlilegt að verja hagsmuni Íslands gagnvart Evrópusambandinu og þessari umsókn, ef hann taldi (Forseti hringir.) að einhver stefnubreyting væri að verða?