143. löggjafarþing — 69. fundur,  26. feb. 2014.

um fundarstjórn.

[20:15]
Horfa

Valgerður Bjarnadóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Katrínu Júlíusdóttur fyrir að biðjast afsökunar á óheppilegum ummælum sínum sem hún viðhafði úr sæti sínu eftir að hún hafði verið gróflega, að mér fannst, áreitt hér í ræðustól.

Þá kem ég að því hvernig fólk biðst afsökunar. Ég var ekki hérna í gær, ég var í fjölskylduboði sem ég gat ekki komist undan eða vildi ekki komast undan, ég ætla nú að orða það þannig að ég vildi það ekki. En ég horfði á afsökunarbeiðni hæstv. utanríkisráðherra og hann sagði: Ef ég hef misboðið einhverjum. Er það svoleiðis? Ekki kenndi mamma mín mér að biðjast svona afsökunar, það get ég sagt hæstv. forseta. Það er ekki að biðjast afsökunar að segja: Ef ég hef gert eitthvað þá sé ég eftir því. Fólk á að biðjast almennilega afsökunar.