143. löggjafarþing — 69. fundur,  26. feb. 2014.

aðildarviðræður við Evrópusambandið (skýrsla).

320. mál
[21:49]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég stend mig að því að verða meira og meira sammála hv. þm. Guðbjarti Hannessyni um þetta mál allt saman. Ég vil samt spyrja hv. þingmann út í þjóðaratkvæðagreiðslurnar. Nú skil ég rökin fyrir því að þessar viðræður séu í raun og veru ekki aðlögunarferli í þeim skilningi sem kannski Heimssýn mundi segja að þær væru. En þá velti ég fyrir mér hvort ekki hefði verið skynsamlegra upp á pólitískt lögmæti, bara til að forðast svona uppákomur, að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu um málið til þess að lögmætið væri alveg skýrt. Ég velti fyrir mér sjónarmiðum hv. þingmanns í þeim efnum.