143. löggjafarþing — 69. fundur,  26. feb. 2014.

aðildarviðræður við Evrópusambandið.

320. mál
[23:37]
Horfa

Ögmundur Jónasson (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég reyndi að gera það í ræðu minni hér áðan. Efni hennar er á þá lund að aðildarviðræðum við Evrópusambandið verði formlega hætt og frá því greint í Brussel. Þær verði ekki hafnar að nýju nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu. Sú þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram áður en þessu kjörtímabili lýkur. Það er þessi lokasetning, þessi mikilvæga lokatilvísun í þjóðaratkvæðagreiðslu, sem skilur á milli okkar og ríkisstjórnarinnar.

Síðan er það annar handleggur að orða spurninguna. Þar er ég að segja að mismunandi sjónarmið séu uppi um hvernig fara eigi að því. Ég er með mjög skýra afstöðu til þess og vísað er til þeirrar afstöðu í greinargerð okkar með þingmálinu. Það eru ekki allir á einu máli um þetta, hvorki í mínum flokki né öðrum, og mér finnst eðlilegt að það sé rætt.