aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Herra forseti. Nú gengur tillaga Pírata, Samfylkingarinnar og Bjartrar framtíðar út á það að fara skuli í þjóðaratkvæðagreiðslu samhliða sveitarstjórnarkosningum, um hvort halda eigi áfram með aðildarviðræður. Það er það sem þjóðin kallar eftir, 2/3 hlutar kjósenda Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks eru hlynntir því. Það eru fleiri í öðrum flokkum sem eru hlynntir því, en meira að segja hjá þessum flokkum er aukinn meiri hluti hlynntur þessu.
Það mál virðist ekki ætla að rata á dagskrá þingsins fyrir þann tíma sem þarf til að klára það. Þá spyr maður sig aftur hvort hv. þm. Ögmundur Jónasson hafi talað við stjórnina um að klára málið, lenda því á einhverjum þeim forsendum sem Vinstri hreyfingin – grænt framboð hefur lagt til, hvort hann hefur fengið vilyrði fyrir því, hvort hann hefur talað um það eða hvort einhvern veginn er verið að reyna að lenda því þannig. Ég væri svo sem til í að fresta þessu (Forseti hringir.) öllu saman ef það væri málamiðlun. Að sjálfsögðu vill þjóðin klára þetta núna (Forseti hringir.) en ef það væri málamiðlun að fresta þessu þá væri það betra en að slíta viðræðum. Þjóðin er ekki tilbúin til að slíta viðræðum núna.