aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Virðulegi forseti. Ég er sammála hv. þingmanni, það er ærin ástæða fyrir hæstv. menntamálaráðherra að eyða nokkurri orku í að hugleiða hvernig hann ætlar að krafsa sig út úr þeim yfirlýsingum sem fréttamenn voru svo duglegir að grafa upp eftir honum í kvöldfréttum sjónvarpsins. Eftir þennan kvöldfréttatíma er það nú þannig að öll heila forustusveit Sjálfstæðisflokksins hefur verið þurrkuð út hvað trúverðugleika varðar og enginn getur treyst þessu fólki fyrir horn.
Það merkilega er að það eru mýmörg dæmi um nákvæmlega sem hv. þingmaður spurði um, hvort forustumennirnir sæju þessa þróun fyrir ef þeir settust saman í ríkisstjórn. Hér er ég með útprentun úr frétt úr Fréttablaðinu 24. apríl með fyrirsögninni: „Gætu þurft að semja óviljugir um ESB“. Þar eru viðtöl við þá báða þar sem fréttamaðurinn innleiðir spurningar til þeirra beggja á þessari forsendu: Nú eru allar líkur á að þið náið meiri hluta saman. Ef þið næðuð meiri hluta saman og munduð starfa saman hvað munduð þið gera? Báðir staðfesta að þeir muni standa fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu, krafsa sig út úr því hvort það sé trúverðugt eða ekki. Skýrast talar formaður Sjálfstæðisflokksins þegar hann segir: „Við höfum haft það sem hluta af okkar stefnu að opna fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu til að útkljá þetta mál og við munum standa við það.“(Gripið fram í: … ræða skýrsluna?) Þetta segir hann þegar hann er beinlínis spurður um það hvernig það verði að vinna með Framsóknarflokknum um þetta mál. Yfirlýsingar þeirra voru ítrekað settar á þann prófstein, hvernig þetta ætti að geta verið trúverðugt. Svör þeirra eru alveg skýr. Þess vegna eru svikin enn stórfenglegri.