aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Herra forseti. Það gladdi mig þegar hv. þingmaður sagði að ég væri heiðarlegur að einungis einn þingmaður í salnum hló.
Af þeim atriðum sem hv. þingmaður taldi hér upp þá hef ég áður sagt að tvö þeirra séu langerfiðust og muni verða mjög þung í samningum. Það er annars vegar fyrirsvarið gagnvart þriðju ríkjum, ég tel að töluvert erfitt verði að ná því fram en ekki ómögulegt og það verði að láta á það reyna.
Hitt bendi ég á að við eigum einungis ósamið um einn stofn formlega, flökkustofn, erum þó búin að ná samkomulagi við Evrópusambandið um makrílinn. Það eru Norðmenn sem út af standa, en við erum ekki lengur í deilu við Evrópusambandið. Um alla aðra stofna er samið. Og við höfum líka skoðað það að það er ákaflega ólíklegt, og okkar fræðimenn koma ekki auga á það, að neinn annar stofn en makríllinn væri líklegur til að synda inn í lögsögu okkar. Það má líka setja dæmið upp með þeim hætti að þegar þessi staða er upp komin sé besta vörn okkar, til að halda okkar hlutdeild, hugsanlega sú að hafa afl og styrk Evrópusambandsins. Ég gæti farið lengra út í það.
Það sem ég tel að verði svo erfiðast í þessum samningum, og hef alltaf sagt það, það er hinn gagnkvæmi réttur til fjárfestinga. Ég held að línan muni dragast þar. Ég hef sagt það áður í skýrslum mínum til Alþingis að ég sé nokkuð bjartsýnn á að við náum sérlausnum um ýmislegt það sem menn hafa mest verið að ræða hér, þeir hafa nú sjaldan rætt um þetta. En þetta hef ég alltaf sagt að væri það erfiðasta. Ég er alveg sammála hv. þingmanni um að það væri auðvelt fyrir okkur að fá langvinnar tímabundnar undanþágur frá þessu eða frest, en þar mun slagurinn standa um hvernig lyktir þess máls verða. Þetta held ég að verði stóri slagurinn og ég hef sagt hér: Ef (Forseti hringir.) einhvern tíma skrensar eða slitnar þá er það (Forseti hringir.) út af þessu.