aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Virðulegi forseti. Mér skilst að forseti velti vöngum yfir því hve lengi eigi að halda áfram og meti stöðuna. Ég vil leggja þær upplýsingar inn í það púkk, stöðuna eins og hún er, að það eru níu á mælendaskrá. Klukkan er korter yfir eitt 27. febrúar 2014. Ég á að mæta á nefndarfund kl. hálfníu í fyrramálið og hér er búið að brjóta vinnuréttarlöggjöf. Sumt af henni er reyndar ættað frá Evrópusambandinu og því kannski vel við hæfi að brjóta hana fyrst ekki á að hugsa meira um það.
En ég bið hæstv. forseta um að segja okkur alla vega, hvenær mælt verði fyrir næsta máli á dagskrá.