aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Virðulegi forseti. Mig langar til að spyrja forseta hvort „enn um sinn“ eigi við núna [Söngur í þingsal.] eða hvort eitthvað annað sé fram undan. Eins og hér hefur komið fram hefur hæstv. utanríkisráðherra verið tilbúinn til að mæla fyrir nýju máli en hann virðist ekki vera tilbúinn til að taka þátt í þessari umræðu. Það er mjög sérkennilegt að vilja það ekki en finnast í lagi að mæla fyrir nýju máli um miðja nótt. Það er eðlilegt að við fáum svör við því hvort „enn um sinn“ sé langur tími eða stuttur tími eða teygjanlegt hugtak eða hvort forseti geti gefið skýr svör. Er vilji til þess hjá hæstv. forseta, ef þingmenn eru tilbúnir til að ljúka umræðu um skýrsluna fljótlega, að ljúka þingfundi?