143. löggjafarþing — 69. fundur,  27. feb. 2014.

aðildarviðræður við Evrópusambandið (skýrsla).

320. mál
[01:29]
Horfa

Katrín Júlíusdóttir (Sf) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Þetta síðasta er aðeins of flókið fyrir mig, ég er ekki nógu góð í veiðimálinu. Ég spyr miklu frekar hvort hæstv. forseti ætli ekki fara að flauta til leiksloka í dag vegna þess að ég held að það sé komið nóg. Það er ekki hægt að tala út í hið óendanlega um skýrslur hér á Alþingi. Hver og einn hefur tvær ræður, eina 15 mínútna og eina 5 mínútna, þannig að menn geta reiknað út hvernig dagurinn á morgun mun byrja og hæstv. ráðherra muni mæla fyrir tillögunni á morgun.

Ég skil þess vegna ekki hvers vegna hæstv. forseti ætlar að halda okkur hér fram á morgun, ég bara skil það ekki. Ég hef ekki heldur fengið svar frá hæstv. forseta við því af hverju, þegar tveir og hálfur mánuður eru eftir af þinginu, þetta eina mál kalli á það. Mér þætti vænt um að fá svör við því einu sinni. Ég er búin að spyrja um það um tíu sinnum í dag, ég fæ aldrei svör við því. Það væri ágætt að einhvern tíma væri spurningum manns í þessum stól svarað.