aðildarviðræður við Evrópusambandið .
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni efnisríka ræðu og sá hvergi á ræðuflutningnum að hér væri mælt að ganga þrjú að nóttu.
Ég vildi nefna einn þátt sérstaklega. Hv. þingmaður rakti ágætlega þá afstöðu sína og margra í Vinstri hreyfingunni – grænu framboði að hafa verið á sínum tíma tilbúin að sækja um aðild að Evrópusambandinu og leggja niðurstöðuna í dóm þjóðarinnar, vera tilbúin að sækjast eftir hinum besta samningi sem í boði væri þó að ekki væri sannfæring fyrir því fyrir fram að Íslandi væri betur borgið innan Evrópusambandsins.
Þessi afstaða hefur verið útmáluð með afskaplega ófögru orðavali af núverandi stjórnarmeirihluta. Þess sást stað í upphaflegri þingsályktunartillögu hæstv. utanríkisráðherra. En mér hefur alltaf fundist þetta vera virðingarverð og eðlileg afstaða. Ég vil spyrja hv. þingmann: (Forseti hringir.) Þegar maður horfir á fordæmin annars staðar frá, sérstaklega frá Noregi og Svíþjóð (Forseti hringir.) þar sem ráðherrar voru í ríkisstjórn sem sótti um aðild, sem höfðu fyrirvara á málinu, (Forseti hringir.) fóru jafnvel með stóra samningsþætti, (Forseti hringir.) hvernig horfa þau við hv. þingmanni?