kosningaloforð Sjálfstæðisflokksins.
Virðulegi forseti. Fátt hefur verið meira rætt síðustu viku en hin sögulegu svik formanns Sjálfstæðisflokksins á kosningaloforðum fyrir síðustu kosningar. Umræðan hefur mikið snúist um þau. Hins vegar var mjög upplýsandi í kvöldfréttum ríkissjónvarpsins í gærkvöldi þegar sýnd voru myndbrot sem sýndu að það var ekki bara hann heldur öll forustusveit Sjálfstæðisflokksins sem gaf sams konar loforð fyrir síðustu kosningar og er því ber að sömu sögulegu svikum.
Ekki einn ráðherra Sjálfstæðisflokksins, ekki tveir, ekki þrír, ekki fjórir heldur fimm ráðherrar Sjálfstæðisflokksins. Og hvað eru þeir aftur margir? Jú, þeir eru fimm.
Hver og einn einasti þeirra lofaði þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna á kjörtímabilinu og allir eru þeir berir að svikum.
Hæstv. innanríkisráðherra sagði í Silfri Egils 17. mars í fyrra:
„Fyrst og síðast snýst þetta um það að Sjálfstæðisflokkurinn telur hagsmunum þjóðar sinnar ekki vera best borgið innan Evrópusambandsins. Við erum hins vegar þeirra skoðunar að vilji þjóðin það á einhverjum tímapunkti beri okkur að fara í þjóðaratkvæði og niðurstaðan af því, við munum virða hana.“
Og aðrir sögðu:
„Að sjálfsögðu mun Sjálfstæðisflokkurinn standa við það að þjóðin fær að ákveða það hvort það verði gengið lengra í þessu máli. Það er þjóðarinnar en ekki einstakra stjórnmálamanna.“
Nú kom í ræðustól í gærkvöldi hv. þm. Brynjar Níelsson og reyndi að bera blak af ráðherrum sínum og sagði: „So what? Þeir eru bara búnir að skipta um skoðun.“
En þá spyr ég á móti: Hvernig á einhver kjósandi í sveitarstjórnarkosningum í vor að treysta frambjóðendum Sjálfstæðisflokksins ef það er afstaða þingmanna Sjálfstæðisflokksins að það eigi bara að segja: „So what?“ gagnvart innan við ársgömlum ummælum ráðherra og forustumanna flokksins?
Hvernig réttlætir hæstv. innanríkisráðherra þessi algjörlega óútskýrðu sinnaskipti og hvernig ætlar hún að útskýra þetta fyrir kjósendum Sjálfstæðisflokksins í sveitarstjórnarkosningum fram undan?
(Forseti (EKG): Forseti minnir á að þingmálið er íslenska.)