143. löggjafarþing — 70. fundur,  27. feb. 2014.

stefnumótun í málefnum framhaldsskólans.

[11:40]
Horfa

mennta- og menningarmálaráðherra (Illugi Gunnarsson) (S):

Virðulegi forseti. Það er greinilega erfitt að gera hv. þingmönnum allt til geðs. En tilgangur þessara funda er annars vegar sá að ég skýri þá sýn sem ég legg fram og hins vegar að svara spurningum og heyra athugasemdir. Þannig hefur það verið á öllum þessum fundum. Ég á eftir að eiga marga svona fundi, virðulegi forseti, þeir eru mjög gagnlegir og á fundunum hafa komið fram mjög gagnlegar ábendingar sem við höfum verið að vinna með. Aðalatriðið er að þetta samtal eigi sér stað til þess að undirbyggja nauðsynlegar breytingar.

Ég hjó eftir því að hv. þingmaður nefndi ekki nein dæmi um það þar sem ég hef rætt þessar breytingar á forsendum þess að hægt sé að ná fram sparnaði. Ég er ánægður með það og ég vona að ég þurfi ekki að heyra aftur þá umræðu af því forsendurnar eru fyrst og fremst að gera breytingar á framhaldsskólakerfinu til að bæta það og styrkja og til að tryggja að íslensk ungmenni eigi sömu möguleika og ungmenni í öðrum löndum til að nýta sinn tíma til þess að undirbúa sig undir lífið. Það er það sem skiptir máli. Ég tel að við séum í færum til að ná árangri hvað það varðar og hlakka til að eiga gott og árangursríkt (Forseti hringir.) samstarf bæði við hagsmunaaðila, (Forseti hringir.) fagaðila og einnig hv. alþingismenn.