143. löggjafarþing — 70. fundur,  27. feb. 2014.

um fundarstjórn.

[11:43]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseti vill geta þess sem fram hefur komið að fundur með formönnum stjórnmálaflokkanna var í morgun að frumkvæði forseta. Sá fundur leiddi svo sem ekki til neinnar niðurstöðu, en orð eru til alls fyrst. Forseti trúir því að viðræður af þessu tagi geti að lokum skilað árangri. Hins vegar hyggst forseti eiga fund með þingflokksformönnum nú í hádegisverðarhléi og mun boða til hans.