143. löggjafarþing — 70. fundur,  27. feb. 2014.

um fundarstjórn.

[11:48]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Við ræðum hér fundarstjórn forseta. Það er óhætt að segja að virðulegur forseti hefur sýnt mikið umburðarlyndi þegar kemur að þeim dagskrárlið, því svo sannarlega erum við ekki að ræða um fundarstjórn forseta. Hér reynir stjórnarandstaðan allt hvað hún getur til þess að tefja umræðu um skýrslu. Ég veit ekki af hverju menn eru að reyna að búa til eitthvað annað, þetta sér hver maður. Ef við tökum saman fjölda þeirra ræðna sem haldnar hafa verið um fundarstjórn forseta má sjá að þetta er það sem verið er að gera.

Virðulegi forseti. Það er hlé á viðræðum við ESB og það mun ekkert breytast, við erum ekki einu sinni að ræða það, við erum að fara yfir skýrslu utanríkisráðherra um þessi málefni. En allt sem við gerum skapar fordæmi. Ef við sköpum það fordæmi núna, sem getur verið sjónarmið, að minni hlutinn geti stöðvað þau mál sem hann vill og umræðu um þau með þessum lið, þá (Forseti hringir.) sköpum við fordæmi hvað það varðar, væntanlega um alla framtíð.