143. löggjafarþing — 70. fundur,  27. feb. 2014.

um fundarstjórn.

[12:01]
Horfa

Guðbjartur Hannesson (Sf):

Hæstv. forseti. Ég er fyrst núna að koma inn í þingið eftir nóttina. Ég veit að hæstv. forseti hefur verið að leysa úr málum og við fengum t.d. að vita, þó að það hafi verið allt of seint, því miður, að sú skýrsla sem hér er til umræðu fer til nefndar þannig að umræðunni lýkur ekki hér í dag. Það geti komið nefndarálit frá hvort sem er stjórnarmeirihluta eða minni hluta í nefndinni eftir atvikum og síðan komi hún aftur til umræðu. Það er hið besta mál og var gríðarlega mikilvægt að fá úr því skorið.

Mig langar aðeins að spyrja, út af dagskrá dagsins og líka vegna þess að hér á að ljúka umræðunni um skýrsluna og reyna að taka síðan næstu mál, hvort það hafi ekki verið réttur skilningur að menn reyndu að taka saman öll þau mál sem varða Evrópusambandsmálin. Þá er ég að tala um þingsályktunartillöguna frá Vinstri hreyfingunni – grænu framboði, sem og tillöguna frá ríkisstjórninni og tillöguna sem hefur verið lögð fram af Pírötum og fleirum, hvort þetta eigi að ræðast allt saman. Það eru akkúrat svona hlutir sem þarf að koma á hreint þannig að við vitum að hverju við göngum, við þurfum ekki að pína út svörin með því að fara ítrekað hér upp til þess að ganga eftir þeim (Forseti hringir.) og svo koma þau eftir klukkutíma eða marga klukkutíma eða jafnvel eftir hálfu og heilu dagana.