143. löggjafarþing — 70. fundur,  27. feb. 2014.

aðildarviðræður við Evrópusambandið.

320. mál
[12:20]
Horfa

Róbert Marshall (Bf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það man ég ekki. Ég er hins vegar ekki hissa á því að hv. þingmaður býsnist yfir ræðu minni áðan. Ég flutti efnislega ræðu í gær, 15 mínútna langa ræðu, og svaraði andsvörum. Ég fór í rökstuðning fyrir því hvers vegna mér finnst að við eigum að vera aðili að Evrópusambandinu. Ég rakti það líka hvernig umræðunni um skýrslunni hefur verið eðlisbreytt, hvernig ákvörðun var tekin um það af stjórnarmeirihlutanum síðasta föstudag að leggja fram tillögu sem breytir allri umræðunni um málið. Hv. þingmaður getur auðvitað komið hér og sagt að ég tali ekki um efnið sem er á dagskrá, en það er vegna þess að hún ásamt öðrum, ásamt félögum sínum, tók ákvörðun um að breyta þessari umræðu í umræðu um hverjir eiga að taka ákvörðunina um að ganga í Evrópusambandið.