aðildarviðræður við Evrópusambandið .
Virðulegur forseti. Ég held að það sé óhjákvæmilegt að þetta mál komi hér á dagskrá. Mér sýnist allt stefna í það. Ég harma að svo sé. Mér finnast það mjög slæm tíðindi. Í þinginu í morgun var lagt fram mjög einfalt sáttatilboð — það er í rauninni ekki einfalt af hálfu míns flokks a.m.k., sem leggur mikla áherslu á að ljúka viðræðum við Evrópusambandið, en við vorum og erum tilbúin til þess að fallast á þann texta sem finna má í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar um að gera hlé á viðræðunum. Ég held að það sé í raun og veru leið sem flestir ættu að geta fallist á. Hún felur jafnframt sjálfkrafa í sér að í kosningum eftir rétt rúma þrjátíu mánuði eða svo fari fram mat þjóðarinnar á framhaldi viðræðnanna. Ég skil ekki hvers vegna menn vilja ekki fara þá leið.