aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Hæstv. forseti. Ég tel að kjarni umræðunnar undir þessum lið, um fundarstjórn forseta, sé einfaldlega sá að það eru mjög misvísandi kröfur frá stjórnarandstöðunni. Þær eru allt frá því að óskað sé eftir nærveru utanríkisráðherra, sem er svo sem eðlileg krafa af því að hann ber ábyrgð á þessu máli, upp í kröfu um að nánast öll ríkisstjórnin sitji hér alla umræðuna, (Gripið fram í.) eins og kom fram hjá þingflokksformanni Samfylkingarinnar, sem og allur þingheimur.
Ef við mundum fletta upp í þingsögunni — sem reyndar má ekki, má ekki tala um fortíðina en ég leyfi mér það — held ég að við sjáum þess ekki stað að stjórnarandstaðan á síðasta kjörtímabili hafi verið með sambærilegar kröfur, þótt vissulega sé eðlilegt að óska eftir nærveru þess ráðherra sem ber ábyrgð á málaflokknum.
Varðandi þá fullyrðingu hv. þm. Valgerðar Bjarnadóttur að skýrsla utanríkisráðherra um stöðuna í ESB-málunum sé stærsta mál sem komið hefur inn í þingsalinn, þá er ég a.m.k. ekki sammála því. Minni á mál eins og Icesave.