143. löggjafarþing — 70. fundur,  27. feb. 2014.

tilhögun þingfundar.

[15:06]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf):

Virðulegur forseti. Ég vil fá að nota þetta tækifæri og þakka forseta Alþingis fyrir hans atbeina að því að leysa úr þeirri erfiðu stöðu sem hér var komin upp. Ég þakka honum fyrir að koma störfunum hér í farsælan farveg á nýjan leik og hvet alla þingmenn úr öllum þingflokkum, bæði meiri og minni hluta, til að leggjast á árarnar um að nýta þá nefndaviku sem í hönd fer til að byggja brýr á milli manna í þessu viðkvæma og heita deilumáli sem hér hefur sundrað mönnum og sett þinghaldið í þá upplausn sem við urðum vitni að í gær og dagana þar á undan.