143. löggjafarþing — 70. fundur,  27. feb. 2014.

tilhögun þingfundar.

[15:07]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseti vill taka fram að fyrir misgáning láðist að boða hv. þm. Birgittu Jónsdóttur á síðasta fund okkar þingflokksformanna og formanna flokkanna sem haldinn var hér í snarhasti rétt fyrir klukkan þrjú. Forseti biðst velvirðingar á því en við hv. þingmaður erum sammála um að sú frásögn af fundi okkar er í samræmi við það samkomulag sem við gerðum.