143. löggjafarþing — 70. fundur,  27. feb. 2014.

tilhögun þingfundar.

[15:12]
Horfa

Sigrún Magnúsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Eins og aðrir sem hafa tjáð sig hér er ég ánægð með þessa niðurstöðu og fagna henni. Eins og ég sagði í ræðu í morgun finnst mér forseti hafa staðið sig vel á þessum óróleikatímum, verið stefnufastur og úrskurðað um mál. Ég er mjög ánægð með stjórn hans.