143. löggjafarþing — 70. fundur,  27. feb. 2014.

aðildarviðræður við Evrópusambandið.

320. mál
[15:33]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég tel það mjög slæmt ef fólki finnst það vera svikið um kosningaloforð, það er auðvitað mjög slæmt mál. Ég hef ekkert dregið úr því. Ég hef haft mínar efasemdir um þjóðaratkvæðagreiðslur hvað þetta varðar. Þó svo að ég vilji nýta þjóðaratkvæðagreiðslur í auknum mæli finnst mér við ekki vera búin að klára þá umgjörð og við ættum að drífa okkur í það. Þá væri best að við gætum gert það í sátt og með einhverri hugsun á bak við það. Hér voru nefndir Svisslendingar. Viljum við fara sömu leið og þeir, viljum við slíkt umhverfi? Við þurfum að breyta mjög miklu til að svo megi verða. Við verðum að ganga þannig fram að þjóðaratkvæðagreiðslur skili okkur betra þjóðfélagi því að stundum hafa þær verið misnotaðar af valdhöfum og stundum hefur framkvæmdin ekki verið góð og það hefur leitt af sér slæma hluti.

Varðandi það að afturkalla umsóknina og ýtrustu kröfur þá er ég mjög ósáttur með það og þykir það erfitt í málinu að mér finnst að röngum upplýsingum hafi verið haldið að fólki. Ég hef fært rök fyrir því og mun gera það áfram. Ég átta mig á því að ég er í fullkomnum minni hluta þegar ég fer yfir þau sjónarmið. Ég hef reynt að benda á það sem ég tel vera staðreyndir. En t.d. varðandi afturköllun umsóknar þá gerist ekki neitt. Svissneska leiðin er ekkert svissnesk leið, þetta er bara Sviss, þeir eru hættir þessu, það vita allir að þeir eru ekki í neinum aðildarviðræðum, ekkert meira með það.

Hér hefur stundum verið kallað eftir skýrri stefnu hvað þetta varðar. Ef við mundum afturkalla umsókn á morgun en ákveðum svo seinna að fara í umsóknarferlið þá sækjum við um aðild. Evrópusambandið mun ekkert segja við okkur: Nei, þið móðguðuð okkur þarna um daginn. Þetta er ekki þannig. Þeir mundu bara taka á móti umsókninni og ferlið færi af stað. (Forseti hringir.) Við erum svolítið að deila um eitthvað sem litlu máli skiptir.