aðildarviðræður við Evrópusambandið .
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Róberti Marshall fyrir fyrirspurnina. Ég held að þetta sé spurningin sem flestir velta fyrir sér og ég held að akkúrat þetta upplegg hv. þingmanns sé eitthvað sem er tekið fyrir á kaffistofum og í samtölum fólks. Ég ætla að útskýra af hverju það gengur ekki. Ég vil taka fram að ég treysti þjóðinni. Ég hef hins vegar orðið fyrir miklum vonbrigðum með talandi hluta akademíunnar og fjölmiðla varðandi upplýsingar til almennings í þessu máli, mjög miklum vonbrigðum, og þá er ég auðvitað ekki að tala um alla, ég er að alhæfa, ég er að tala um þá stærstu og þá sem eru mest áberandi.
Segjum að mér og hv. þm. Róberti Marshall sé falið þetta verkefni. Við erum í ríkisstjórn og þótt ég sé ósammála hv. þm. Össuri Skarphéðinssyni í pólitík er það svo að ef hann er hæstv. utanríkisráðherra eða Gunnar Bragi Sveinsson, eða hver sem er hér inni, verður viðkomandi stjórnmálamaður og viðkomandi ríkisstjórn og stjórnarmeirihluti að leggja línurnar hvað varðar um hvað á að semja, hvað sé ásættanlegt o.s.frv. Síðan fer fólk, og vonandi hæfasta fólkið, og alla jafna eru menn í praktískum hlutum þegar þeir skoða aðildarsamninga, svokallaða, það snýst um hvernig menn aðlaga hlutina, á hve löngum tíma o.s.frv. Síðan kemur að stjórnmálamanninum, segjum að það séum við hv. þm. Róbert Marshall, við þurfum að segja að við sættum okkur við þetta og að við ætlum að berjast fyrir því. Við verðum þá að vera sannfærðir um það þegar við förum af stað að þetta sé það sem við viljum.
Gro Harlem Brundtland, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs, var frá fyrsta degi stuðningsmaður aðildar Noregs að Evrópusambandinu. Hún talaði um kosti þess fyrir Noreg að ganga í Evrópusambandið frá fyrsta degi til hins síðasta. Það dugar ekki að setja einhvern í verkið, alveg sama hversu góður hann er, og segja: Heyrðu, þú reynir að finna eitthvað gott út úr þessu. Það virkar ekki af augljósum ástæðum, en ég skal gera betur ef hv. þingmanni finnst þetta óljóst.