143. löggjafarþing — 70. fundur,  27. feb. 2014.

aðildarviðræður við Evrópusambandið .

320. mál
[15:42]
Horfa

Róbert Marshall (Bf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég skil alveg sjónarmið hv. þingmanns, ég er bara ekki sammála þeim. Ég held að mögulegt sé að gera þetta á þann hátt að þjóðin geti tekið upplýsta ákvörðun.

Á síðasta kjörtímabili kom það að minnsta kosti tvisvar sinnum fyrir að haldnar voru atkvæðagreiðslur, þjóðaratkvæðagreiðslur um tiltekið mál í tvígang, um Icesave-samning, þar sem ríkisstjórn var falið að útfæra þær. Þá fengum við sem vorum í stjórnarmeirihlutanum og við sem vorum í hv. allsherjarnefnd, sem síðar erfði ákveðið hlutverk eða skilaði ákveðnu hlutverki yfir til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, Hagfræðistofnun Háskóla Íslands til þess að undirbúa hlutlaus kynningargögn sem voru send út á meðal þjóðarinnar.

Ég man líka eftir því — og það er sorglegt frá því að segja að liðin eru meira en 20 ár frá því að ég og hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson vorum í forustu fyrir ungliðasamtök — þegar EES-samningurinn var kynntur til sögunnar og þáverandi utanríkisráðherra Jón Baldvin Hannibalsson kom hingað og sagði hin frægu orð: Allt fyrir ekkert.

Ég held að það sé hægt að gera þetta þannig (Forseti hringir.) að fólk geti tekið upplýsta ákvörðun og komist að lýðræðislegri niðurstöðu. Ég er ekki að ásaka hv. þingmann um að treysta ekki þjóðinni, ég held bara að þetta (Forseti hringir.) sé besta leiðin til þess að leiða þetta mál til lykta.