143. löggjafarþing — 70. fundur,  27. feb. 2014.

aðildarviðræður við Evrópusambandið.

320. mál
[16:48]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góðar spurningar. Varðandi matvælaöryggið, viðskiptafrelsið og samspil þess tel ég mjög líklegt að við mundum til dæmis auka samkeppnina með hvíta kjötið, við sæjum minni framleiðslu á því á Íslandi, annaðhvort mjög lækkað verð eða minni framleiðslu. Það gæti alveg komið til þess. Svo getur líka vel verið að það séu möguleikar í útflutningi þar, ég þekki það bara ekki, það er mikil hagræðing búin að vera á því sviði. Það getur vel verið að þeir möguleikar séu til staðar. Ég er ekki sérfræðingur í því.

Það þarf hins vegar mjög lítið að gerast, lítil opnun að verða, til að við sæjum að hægt væri að stórauka framleiðslu á þessum hefðbundnu búvörum og þá er ég að vísa í lambakjöt og nautgripi. Ég veit ekki hvort það mun gerast en eftir fríverslunarsamninga Nýsjálendinga og Ástrala við Kínverja hafa menn séð miklar breytingar á landbúnaðarframleiðslu þar vegna þess að það hefur verið mikil eftirspurn eftir þeim vörum á því stóra markaðssvæði, þ.e. í Kína.

Varðandi matvælaöryggið og svona ógnir fer það eftir því hvernig það er skilgreint. Við verðum í erfiðustu stöðunni verði mengunarslys í höfuðborginni. Ég held að það sé tiltölulega einfalt fyrir okkur að sækja fisk í sjóinn miðað við þann flota sem við höfum til þess að brauðfæða þjóðina ansi lengi. Margt væri verra en að við borðuðum meiri fisk.

Ég er ekki að óska þess að við lendum í slíkum hörmungum, alls ekki, það væri auðvitað skelfilegt. Við Íslendingar vorum fátækasta þjóðin í Evrópu í kringum 1900. Núna erum við með þeim best stöddu. Forsendan fyrir velmegun okkar er viðskiptafrelsi og það er vegna þess að við höfum aðgang að mörkuðum annarra ríkja. Ef aðrar þjóðir ætla að feta í fótspor okkar, og margar þjóðir eru mjög fátækar, verða þær að fá aðgang að mörkuðum hinna ríkari ríkja. (Forseti hringir.) Þar hafa hin þróuðu ríki ekki staðið (Forseti hringir.) sig sem skyldi.