143. löggjafarþing — 70. fundur,  27. feb. 2014.

umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu dregin til baka.

340. mál
[18:16]
Horfa

Birgir Ármannsson (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Fyrst að fyrra atriðinu sem hv. þm. Katrín Júlíusdóttir vék að. Ég held að allir sem málin skoða geti verið sammála um að Evrópusambandið er að eðli og uppbyggingu ólíkt öðru alþjóðasamstarfi sem við eigum að aðild að. Það er eins og sagt er í Evrópufræðum „sui generis“, þ.e. síns sérstaka eðlis, og gengur út á miklu nánara og dýpra samstarf en annað alþjóðasamstarf sem við eigum aðild að eða þekkjum. Þess vegna leyfi ég mér að tala um það með þeim hætti að Ísland er í viðræðum við Evrópusambandið að óska eftir aðild að Evrópusambandinu en ekki öfugt. Þess vegna legg ég áherslu á það að fram kemur að það er grundvallaratriði af hálfu Evrópusambandsins að ný aðildarríki lagi sig að löggjöf Evrópusambandsins. Það er ekkert óskaplega flókið, (Forseti hringir.) það er tiltölulega skýrt, hæstv. forseti.