143. löggjafarþing — 70. fundur,  27. feb. 2014.

umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu dregin til baka.

340. mál
[18:21]
Horfa

Birgir Ármannsson (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég fagna því að fá tækifæri til að svara þessu eins og ég hef reyndar fengið í fjölmiðlum undanfarna daga, ekki kannski hér í þinginu nógu mikið. Ég legg áherslu á það, alla vega frá mínum bæjardyrum séð, og það er ástæðan fyrir því að ég styð þessa tillögu, að ég held að það sé betra að hafa línur sem skýrastar í þessum efnum. Þegar staðan er sú að meiri hluti þings og öll ríkisstjórnin er þeirrar skoðunar að við eigum ekki að ganga í Evrópusambandið og eigum ekki að halda áfram í viðræðunum tel ég heiðarlegast að segja það skýrt í ályktun Alþingis.

Þegar ríkisstjórnin tók þá ákvörðun í fyrrasumar að hætta aktífum viðræðum við Evrópusambandið var mjög kallað eftir því að það mál kæmi til kasta þingsins. Menn veltu fyrir sér: Getur utanríkisráðherra gert þetta, þarf hann ekki aðkomu þingsins? Nú erum við komin í það að ræða þetta mál hér í þinginu og þurfum þá að ræða það út frá þeim blæbrigðum sem kunna að vera fyrir hendi í þessum efnum. Ég er alveg sammála því að þetta er afdráttarlaus niðurstaða í þessari tillögu, en ég held að það sé betra út frá því að þá eru línur skýrar, þá eru menn ekkert hálft í hvoru eða að þykjast vera í einhverju ferli sem þeir eru ekki í.