143. löggjafarþing — 71. fundur,  10. mars 2014.

fundur forseta með formönnum þingflokka o.fl.

[15:18]
Horfa

Valgerður Bjarnadóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Ég held að embætti forseta Alþingis sé ekki mjög eftirsóknarvert þessa dagana. Ég þóttist heyra á honum í hádegisfréttum í dag að hann hefði orðið fyrir vonbrigðum með að ekki hefði tekist að boða til þess fundar sem hann hafði sagt að hann ætlaði að reyna að koma á í síðustu viku. Ef það er rétt hjá mér að forsetinn hafi orðið fyrir vonbrigðum með það vil ég taka undir þau vonbrigði. Það hljóta að vera vonbrigði, ekki bara fyrir okkur þingmenn, held ég, heldur alla sem fylgjast með þessari samkomu, sem er nú kannski ekki rétt að kalla virðulega þessa dagana, að dagar í síðustu viku skyldu ekki hafa verið notaðir til þess að við gætum haldið áfram eðlilegum þingstörfum. Hér er á dagskrá tillaga um að lækka gjöld sem sett voru á og skipta alla miklu máli. Ég skil ekki af hverju hún er ekki tekin fram fyrir þetta mál, til að nefna eitt dæmi.