fundur forseta með formönnum þingflokka o.fl.
Virðulegi forseti. Maður er að reyna að átta sig á því í hvað tími hæstv. forsætisráðherra fór í síðustu viku þegar formenn stjórnmálaflokkanna biðu eftir því að fá fundarboð til að geta farið yfir eitt stærsta deilumál samtímans í íslenskum stjórnmálum. Ég sé það auðvitað þegar ég fer að skoða dagskrá forsætisráðherra að hann hefur verið upptekinn við ýmislegt, eins og að vera lukkudýr íshokkíliðsins í Edmonton á meðan á þessu stóð. Það hefði hugsanlega verið hægt að taka frá tíma í hálfleik til að ræða við stjórnarandstöðuna heima á Íslandi, kannski á símafundi, en það er kannski til of mikils ætlast. Ég held að það sé ekki ofsagt að hæstv. forsætisráðherra skuldi þinginu og þjóðinni skýringar á þessu háttalagi sínu. (BirgJ: Heyr, heyr!)