143. löggjafarþing — 71. fundur,  10. mars 2014.

um fundarstjórn.

[18:35]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (P):

Forseti. Því miður er það þannig að öll ábyrgðin á því ófremdarástandi sem er að verða á þinginu liggur hjá hæstv. forsætisráðherra. Það er enginn, ekki nokkur vilji hjá hæstv. forsætisráðherra til að koma til móts við kröfu þjóðarinnar, ekki nokkur. Það er bara svívirðilegt þegar maður situr á fundi og reynir að koma með einhverjar lausnir og réttir fram höndina enn einu sinni að þá sé bara slegið á hana.

Ég veit ekkert hversu lengi ég er tilbúin til þess að rétta fram höndina, svo það sé sagt. Ég er alveg búin að fá nóg af háttsemi hæstv. forsætisráðherra og það held ég að mun fleiri séu líka. Ég held að það sé kominn tími til að þessi svokallaði hæstv. forsætisráðherra fari að sýna hér einhvern samstarfsvilja. Þetta er til skammar, skammar og aftur skammar.