um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Ég þakka forseta aftur fyrir að hlutast til um að þessi fundur væri haldinn, þó að hann hafi ekki verið haldinn á þeim tíma sem samið var um og það sé vont í störfum þingsins að menn standi ekki við það sem þeir semja um, sérstaklega þegar þeir fara fyrir landsstjórninni eins og er í þessu tilfelli.
Ég verð hins vegar að segja að það er með miklum ólíkindum, ef rétt er frá greint og ástæða til að spyrja hæstv. forseta að því, að formenn beggja stjórnarflokkanna, forsætisráðherra og fjármálaráðherra, hafi setið með þetta mál í fanginu í ellefu sólarhringa samfleytt og komi nú til fundar án þess að hafa neitt efnislegt fram að færa á honum annað en þann góða vilja sem allir lýstu yfir fyrir ellefu dögum. Það er ekki von til þess að hér gangi greiðlega í þingstörfum ef ekkert gerist á heilum ellefu dögum efnislega í stærstu málum sem hér eru til umfjöllunar.