um fundarstjórn.
Frú forseti. Það er náttúrlega með ólíkindum að heyra þær fréttir af þessum fundi að forustumenn ríkisstjórnarinnar hafi ekkert haft fram að færa og að hæstv. forsætisráðherra hafi, miðað við þá endursögn, satt best að segja ekki verið mjög lausnamiðaður. Það er ekki víst að heimkoma hans frá Kanada hafi í sjálfu sér greitt neitt götu þessa máls og maður veltir því fyrir sér hvort það hefði verið betra að hann hefði bara haft flugmiða aðra leiðina.
Það er greinilega nokkurt óefni að halda áfram umræðunni hér við þessar aðstæður. Það eru alveg málefnaleg sjónarmið að það sé óþægilegt, eins og kom t.d. fram í síðustu ræðu, að menn geri sér vonir um eitthvert samkomulag um hvernig ramminn verði utan um umræður um þrjár þingsályktunartillögur í einu. Það er ekki í boði. Auðvitað er það niðurstaða eins og hver önnur ef stjórnarmeirihlutinn hefur ekkert fram að færa eða formenn stjórnarflokkanna hafa ekki lagt neinar hugmyndir á borðið um málamiðlanir eða málsmeðferð sem hægt er að byggja á, en þá er málið auðvitað upp í loft, (Forseti hringir.) frú forseti, með þeim afleiðingum sem það er dæmt til að hafa.