143. löggjafarþing — 71. fundur,  10. mars 2014.

um fundarstjórn.

[18:53]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Frú forseti. Ég verð að taka undir með þeim sem hér hafa talað og gagnrýna hegðun hæstv. forsætisráðherra í þessu máli. Ég held að stjórnarandstaðan, þjóðin hafi reynt að vera lausnamiðuð í því sem hún óskar eftir. En það þarf tvo til og á meðan ekkert er útspilið er ekki von á því að við náum neinum árangri. Það er mikilvægt að hafa í huga að þetta snýst ekki um stjórnarandstöðuna á þingi, þetta snýst um þjóðina sem hér hefur ítrekað safnast saman úti á Austurvelli undanfarið.

Ég tek undir þau orð sem sögð voru áðan og lít þannig á að þessi fundur hafi verið sýndarmennska. Miðað við að ekkert hafi komið fram getur maður ekki dregið aðra ályktun en þá að fundinum hafi eingöngu verið slegið upp til þess að menn geti sagst hafa reynt að bjóða upp á einhverja lausn, því miður. Ég lít þá líka þannig á að þá höfum við hér til umfjöllunar þrjár tillögur (Forseti hringir.) sem við getum fjallað um í fullum málsmeðferðartíma. Ég tek undir (Forseti hringir.) með hv. þm. Birgittu Jónsdóttur um að þetta hljóta líka að vera boð um að við sýnum (Forseti hringir.) hér þétta stjórnarandstöðu gagnvart ríkisstjórninni.