um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Ég verð að gera sömu athugasemd við fundarstjórn forseta og ég gerði fyrr á fundinum. Á dagskrá fundarins er þingsályktunartillaga um slit á viðræðum við Evrópusambandið. Tillöguflytjandi er hæstv. utanríkisráðherra Gunnar Bragi Sveinsson. Hæstv. utanríkisráðherra er ekki í Alþingishúsinu. Hann er ekki viðstaddur þessa umræðu og ekki einu sinni í húsinu og það er með engu móti boðlegt að þingmenn eigi að ræða þetta mikla álitamál um utanríkisstefnu Íslendinga án þess að tillöguflytjandinn sjálfur sé á staðnum.
Því var lofað af forseta af forsetastóli fyrr í dag að séð yrði til þess að hæstv. utanríkisráðherra yrði við umræðurnar. Það hefur ekki gengið eftir, því miður. Ég held að þegar af þeirri ástæðu sé ljóst (Forseti hringir.) að ekki sé ástæða til að halda þessum umræðum áfram.